Færsluflokkur: Bloggar
28.6.2008 | 09:15
nú er ég orðlaus
það er bara þannig!!!!!!
11 ára gamalli stúlku heimilað að fara í fóstureyðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2008 | 19:31
seigur sá gamli hehe
Er ekki betra að vera að drepast í bakinu af þessum sökum en of mikilli líkamsþyngd og hreyfingaleysi? ég myndi veðja á það
Skál fyrir gamla naglanum
Kellan bara óð í blogginu hehe 2 á dag koma skapinu í lag. Er að vinna í annað sinn í Toppsport í dag, var frá 6-9 í morgun og er frá 6-9 í kvöld líka. Doldið ólíkt að vera snemma eða seinnipartana hér... á morgnana eru töluvert fleiri kvinnur sem mæta í tíma og hamast en núna eru nánast bara líkamsræktar tröll í salnum með tilheyrandi (ó)hljóðum og hormónaflyk
Nú er kella að fara að koma sér í form gengur ekki lengur!!!! smá spark í rassinn takk ÍBBA mín sport!!!! búin að fara heil 2 SKIPTI í ræktina síðan ég flutti suður í ágúst í fyrra...... hvernig það er hægt skil ég ekki!!!.(Reyndar verið smá skortur á tíma en það er engin afsökun!!) Allir vita hvað það er holt, gott og nauðsynlegt að hreyfa sig fyrir bæði líkama og sál þess vegna er það ekkert annað en greindarskortur að hreyfa sig ekki, líkaminn er gerður til að hreyfa hann, (svona svipað og bíll er gerður til að keyra hann annars riðgar hann bara í drasl með árunum) og að taka sér pásur frá líkamsrækt er líka bara rugl maður finnur það um leið og maður drullast aftur af stað alltaf segir maður það sama... hvað var ég að spá að slaka á í þessar vikur/mánuði skamm skamm Gamla...
Ekki það að ég sé búin að hanga upp í sófa í þessa mánuði og borða hammara og kokteilsósu í öll mál og orðin 100kílógrömm hell nó!!! kellan er meira svona spítí upp um allt og út um allt og meira að segja búin að ná mér UPP í mína fyrrum kjörþyngd síðan fyrir barnsburðin mikla en hamagangurinn í Helgunni telst ekki með sem líkamsrækt bara daglegar athafnir og vinna hehe
nú er ég hætt áður en ég fer í frekari ritgerðarsmíð
Hreyfistuðkveðjur frá Helgunni
sem bakaði muffins og skúffuköku áðan
Bakveikur vegna hamagangs í rúminu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2008 | 07:48
snemma ..
..Beygist krókurinn
Er að fara að blogga en fram að því verðið þið lesendur góðir bara að hlæja af þessari krúttaralegu mynd
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.6.2008 | 16:20
ój BARA
Það á að banna sumu fólki að eignast börn!!!! hvernig er hægt að vera svona vondur!!!!!!!!!!!!
Svo er til fullt af yndislegu fólki sem ekki getur eignast börn á eðlilegan hátt.....
Hvar er réttlætið ég bara spyr!!!!
Helgan brjáluð!!!!!!!!!!!!!!!
Sveltu börn sín til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.6.2008 | 21:56
mikið rétt
Brá mér í Hveró áðan eða Verahvergi hehe með múttu. Það var sko bíll við bíl alla leið og ekið á 70 km á klukkara, Kikkuðum í "Tuska" eins og það er kallað eða Álnavörubúðina það eru komnir nýjir eigendur og mikið flott til þar fyrir slikk til dæmis Latabæjar skór og föt á helmingi lægra verði en í Hagkaup hvaða hagur er í því að versla þá þar ég bara spyr!!! flott barnaföt og skór í Tuska núna mæli með að þið kikkið á það lömbin mín
Kellan verslaði sér tvenn stigvél. (tvö pör líka í gær) sem sagt verslaði 4 pör af skóm á 2 dögum fyrir tvo bláa og geri aðrir betur búin að vera í of löngu verslunar svelti að ég bara var í þann mund að missa mig.... Hefði viljað kaupa mér tvenn pör til viðbótar í dag en ég náði að hafa hemil á mér. (kikka þangað með Íbbu minni sport þegar hún kemur)kaupum okkur bleiku skóna sem ég sá í dag geggjaðir Það er komið sumar og ég elska það, fíla alla þessa liti, litagleðin alveg í hámarki hjá Helgunni
kýs stundum að kalla mig "Helgan allt á slánni" því ég finna alltaf flott föt (að mér finnst allavega) á lítinn pening og slétt sama um merkið Skál fyrir því og góða helgi
Helgan með shoping æði
Bíll við bíl á Suðurlandsvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.6.2008 | 16:09
húllumhæ
Var á árgangsmóti á föstudaginn. 10 ár síðan ég kláraði grunnskóla 10 ár takið eftir vá dúddamía. Og suma hafði ég ekki séð í þessi10 ár aðra í 7-8 ár en flestir voru bara mjög líkir sjálfum sér, nokkrir búnir að breytast töluvert og ég held að ég flokkist sem ein af þeim hehehe ætlaði að setja inn mynd af mér þá og nú en svo virðist sem ég hafi bara ekki festst á filmu á þessum tíma sem er svo sem ekkert skrítið hehehe Ég var í svaka stuði alveg blá edrú eins og alltaf, skemmti mér alveg konunglega og sýndist flestir gera það líka það var ekki nema helmingur sem mætti eða um 45 stykki maður náði nú ekki að tala við alla en þó nokkra samt. Skelli inn nokkrum myndum:
*Sonja og Helgan í stuði*
*Anna og Rake hressar að vandal*
*Silvía hress og Máni sem hefur aldrei verið þekkur fyrir annað en mikla kátínu*
*frekar hressar píur hehe Góð mynd af Helgunni *
*Máni ofurhressi og minns*
*Ragnhildur í stuði líka*
*Helgan og Rakel góðar saman*
*tími á "fullnægingu" hehe 1 2 og*
*Máni og Sonja að taka sporið*
*Máni að taka vel á móti Ara bróa*
*bræður mínir í sjómann*
Nenni ekki að skella inn fleiri myndum tekur alltof mikinn tíma.. en þetta var alveg fínasta kvöld og þakka ég bara fyrir mig.
LeiTer
HeLgAn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.6.2008 | 22:07
Fréttir- Fréttir-Gleðifréttir:)
Stutt og laggott:
Það er Fjölgun í fjölskyldunni
Guð hvað ég er spennt!!!!!!!!!!
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
29.5.2008 | 22:36
Móðurnáttúra
er svo sannarlega öflug og enginn fær við hana ráðið. Ótrúleg öfl.
Ég nötra enþá enda endalaust af litlum skjálftum núna.
Vá ég hef held ég sjaldan verið jafn hrædd. Var hérna heima með gullmolanum mínum og sem betur fer vorum við rétt við forstofuna (ætluðum í hjólatúr númer 2 í dag) þegar skjálftinn fer af stað stigmagnandi úfff. Ég rauk til og tók Ara minn í fangið sem sagði aftur og aftur "allt í lagi" dúllan litla. Ég stóð með hann í fanginu undir hurðakarminum í forstofunni og horfi á allt dótið hrýnja úr hillunum á golfið og hávaðinn maður minn!!!! Á augabragði var íbúðin öll í glerbrotum og fleiru sem dottið hafið á golfið... bara heppin að vera þarna í húsinu og enignn glerbrot náðu til okkar. En það voru sko brot út um allt upp í sófa og bara allstaðar.... úff þarna kom einn kippur og pumpan á fullt!!!!! maður minn á alveg að gera mann sturlaðann ég bara spyr
Fyrsta sem ég gerði eftir að skjálftinn leið hjá var að tala við nágranna konu mína því símkerfið virkaði ekki var að reyna að ná á mínum heittelskaða. Allir voru í sjokki vægast sagt. Stuttu seinna hringir heimasíminn og það var Bjarminn minn sem betur fer og hann kom svo stuttu seinna. Bílasalan í rúst og margra milljóna tjón þar. Enda mjög nálægt upptökum skjálfans. Loftplötur og dekk duttu á bíla og vá þetta er bara ótrúlegt.... Fór svo að tékka á fólkinu mínu allir voru heilir sem betur fer. Amma greyjið hafið dottið og þurfti að láta hlú að sárum sínum, pantaði svo fyrir hana flug norður á morgun. Kristall, mold og allt á hvolfi heima hjá ömmu. Allt á öðrum endanum heima hjá mömmu og pabba líka. Mestu máli skiptir að allir eru heilir það er fyrir öllu. þó að dauðu hlutirnir séu skemmdir eða ónýtir.
Eitt það fyrsta sem ég sá fara í 1000 mola áðan var kanna sem amma hans Bjarma átti. Svo fór líka risa gler kertastjaki í smass sem sparó liðið gaf mér þegar ég hætti þar í fyrra. *þarna kom annar* ji minn á örugglega aldrei eftir að ná að sofna. Alveg spurnig um að skella sér bara norður eða bara til dk og kikka í h&M....*Þarna kom einn enn* já við erum sem sagt búin að sópa saman glerbrotum og setja rúmið hans Ara inn til okkar.
Vona að þetta sé búið taugarnar meiga ekki við mikið meiru
Suðurlandsskjálftakveðjur
Helgan
Bloggar | Breytt 30.5.2008 kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.5.2008 | 07:28
Morgunhani
Nýtt blogg hjá kellu
búin að vera vakandi í rúma 2 klukkara bara hressandi og svo hjólaði ég líka í vinnuna geggjað geggjað og frábært veður ætlaði samt að fara á bílnum, þegar ég var kominn út huxaði ég æj ég ætti frekar að hjóla það er svo gott veður... inn í bíl fer ég og hann ekki í gang þannig ég hjólaði hehe þetta var notla bara merki
Svo þar sem ég er farin að vinna á líkamsræktarstöð þá er það líka annað merki um að fara að hreyfa á sér rassgatið og koma sér í toppform aftur ekkert kjaftæði og hangs upp í sófa (ekki að ég geri mikið af því að hangsa í sófanum hehe) en mín ætlar sem sagt að fara að drífa sig á fætur þá morgna sem ég er ekki að vinna í Toppsport og mæta í tíma eða taka á því í salnum ohhh það er svo gaman fæ alveg fiðring í mallakút að huxa um það skil ekki hvernig ég er búin að geta ekki hreyft mig neitt af viti síðan í ágúst jæks bráðum ár enda kroppurinn alltof slappur þessa dagana af Helgunnar mati
Vá hvað mig langar í H&M hver er til í að bjóða Helgunni eitthvert í H&M??? koma svo bjóða sig fram!!!! bara einn í einu samt
Á "engin" föt er orðið í mesta basli við að finna mér dress á hverjum degi og hvað þá ef ég fer eitthvað fínt.... flestar buxurnar mínar orðnar gráar af ofnotkun og fleira í þeim dúr... vantar bikini, buxur, boli, peysur, skó, jakka og heilan helling. Kallinn er meira að segja farin að standa og reyna að aðstoða mig við að velja mér föt. Fórum í útskriftarveislu á föstudaginn og ég gat ekki fundið neitt til að vera í, gleymdi leddaranum mínum fyrir norðan og er búin að týna hvítu ermunum mínum sem gerði valið enþá erfiðara!!!! og ég var ekki sátt í því sem ég fór, fannst ég ekki fín þó öðrum hafi fundist það þá nægði það mér ekki. Sálfræðin sko á leiðinni í bæinn í veisluna sagði ég við kallinn, æj ég hefði kannski átt að fara frekar í þetta eða hitt. Þá heyrðist í honum. "Helga mín mér finnst þú mjög fín núna og þú ert nú svo heppin með það að það er nánast alveg sama í hvað þú ferð, þú ert flott í öllu" mér langaði að fara að grenja þegar ég gat ekki valið mér föt en þarna var ég í mesta basli við að halda tárunum pældi eftir þessi orð míns heittelskaða lítið sem ekkert í outfittinu það sem eftir var kvöldsins. og það var svona glimrandi stuð í útskriftinni að allt í einu var klukkan bara að vera 2 jæks.
Jæja ætla að blanda mér morgunmat
Leiter
Helgan
Fatalausi morgunhaninn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.5.2008 | 14:47
Hjól hjól hjól
Jæja hvað haldiði að kellan hafi gert!! fjárfesti í hjóli legg ekki meira á ykkur. Búin að langa í hjól í nokkur ár en aldrei látið það eftir mér, og það var ekki fyrr en kallinn sagði við mig Helga mín farðu svo eftir helgi og keyptu þér hjól var búin að skoða nokkur notuð hjól ætlaði að fara þá leiðina því það er allt svo dýrt í dag og buddan ekki að springa úr seðlum. Eftir margar ferðir á 3 staði hér í bæ sem seld eru hjól gat ég loksins ákveðið mig, held ég sé með valkvíða hehe hrædd um að velja sekkinn í kötnum!! eins og mamma myndi segja...
Keypti hjól, barnastól og hjálma handa okkur mæðginum
En Hjólið er líka bara féskoti gott búin að taka nokkra túra. Fyrsti hjólreiðatúrinn var frekar fyndinn Ari Hrannar ljómaði og talaði allan tímann og ef við stoppuðum þá sagði hann bara meija mamma meija komum við hjá Möggu á Krítik en stoppuðum í 3 mín því hann var alveg óður í að halda áfram og við hjóluðum alveg í enda bæjarins og komum svo við hjá ömmu Helgu á leiðinni heim. Hún var búin að prjón aðra lobbu á Ara því henni fannst hin of lítil sem hún prjónaði nokkrum dögum áður, en hún passar alveg hehe og hún var 7 daga með 2 peysur á prinsinn og gerði svo 2 pör af vettlingum líka hehe hún er sko ótrúleg hún verður alltaf jafn glöð ef maður kemur með verkefni handa henni og svo er hún bara eins og prjónavél ætla að byðja hana að kenna mér að prjóna peysur
Hnakkurinn á nýja fáknum eða sætið eins og norðlendingar segja hehe hnakkur er sko fyrir hesta hann var ekki alveg að gera sig og eftir fyrstu ferð var kellan bara alveg búin á því þarna niðri svo mín fór og fjárfesti í þessum líka fína mjúka hnakk/sæti hehe og nú er bara draumur í dós að hjóla við mæðgin hjóluðum í morgun í Hrafnhólana og djöfull er þetta hressandi heldur hvast samt en það er bara enþá meira hressandi svo lengi sem það rignir ekki!! Love it nú þarf kallinn bara að eignast líka hjól svo við getum farið í fjölskyldu hjólatúr
Já þetta var hjólablogg tihí
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)