seigur sá gamli hehe

Er ekki betra að vera að drepast í bakinu af þessum sökum en of mikilli líkamsþyngd og hreyfingaleysi? ég myndi veðja á þaðWink

Skál fyrir gamla naglanumLoL

Kellan bara óð í blogginu hehe 2 á dag koma skapinu í lagWink. Er að vinna í annað sinn í Toppsport í dag, var frá 6-9 í morgun og er frá 6-9 í kvöld líka. Doldið ólíkt að vera snemma eða seinnipartana hér... á morgnana eru töluvert fleiri kvinnur sem mæta í tíma og hamast en núna eru nánast bara líkamsræktar tröll í salnum með tilheyrandi (ó)hljóðum og hormónaflykGrin

Nú er kella að fara að koma sér í form gengur ekki lengur!!!! smá spark í rassinn takk ÍBBA mín sport!!!!  búin að fara heil 2 SKIPTI í ræktina síðan ég flutti suður í ágúst í fyrra...... hvernig það er hægt skil ég ekki!!!.(Reyndar verið smá skortur á tíma en það er engin afsökun!!) Allir vita hvað það er holt, gott og nauðsynlegt að hreyfa sig fyrir bæði líkama og sálWink Smileþess vegna er það ekkert annað en greindarskortur að hreyfa sig ekki, líkaminn er gerður til að hreyfa hann, (svona svipað og bíll er gerður til að keyra hann annars riðgar hann bara í drasl með árunum) og að taka sér pásur frá líkamsrækt er líka bara rugl maður finnur það um leið og maður drullast aftur af staðLoL alltaf segir maður það sama... hvað var ég að spá að slaka á í þessar vikur/mánuði skamm skamm Gamla...

 Ekki það að ég sé búin að hanga upp í sófa í þessa mánuði og borða hammara og kokteilsósu í öll mál og orðin 100kílógrömm hell nó!!! kellan er meira svona spítí upp um allt og út um alltWinkGrin og meira að segja búin að ná mér UPP í mína fyrrum kjörþyngd síðan fyrir barnsburðin miklaSmile en hamagangurinn í Helgunni telst ekki með sem líkamsrækt bara daglegar athafnir og vinna heheLoL

nú er ég hætt áður en ég fer í frekari ritgerðarsmíð

Hreyfistuðkveðjur frá HelgunniW00t 

sem bakaði muffins og skúffuköku áðanHappy


mbl.is Bakveikur vegna hamagangs í rúminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgan

af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er ég búin að blogga tvisvar í dag um Playboy á einn eða annan hátt var að átta mig á þessu múhahahahahahaha

Helgan, 25.6.2008 kl. 19:34

2 identicon

Eigum við að spyrja kallana okkar hvort sé meira ''important'' í Playboy,brandararnir eða myndirnar hehehe.Spennandi að heyra svörin:)Hvað var það sem Ross í Friends reyndi að halda fram?Hehehe.

Fönní:)

Brynja Svanhvít Lúðvíksdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 22:12

3 Smámynd: Nonni

Ég skil ekki fólk sem segir þær eru bara með honum því hann er ríkur.

Það eru ábyggilega 50% af öllum samböndum í heiminum saman af því að....

hann er í svo góðri vinnu...

.á flottan bíl...

hún er með svo flottan líkama ....

Hann er með svo flottan líkama....

peningar og aftur peningar.

Annars væru ekki svona margir að hætta saman.

Og ps eru í alvuru prandarar í Playboy alltaf fréttir maður eitthvað nýtt.

Nonni, 26.6.2008 kl. 18:15

4 Smámynd: Helgan

hehehehehe Nonni spegúlant en sumir eru bara saman af af ást og hamingju óháð kropp og peningum

Nei nonni það eru brandarar í playboy múhahahahahahahaha

Helgan, 26.6.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband