ég vaknaði

í Miðjum hríðum í morgun!!! hressandiSmile var alveg kasólétt í draumnum og í miðjum hríðum en þær voru ekkert svo slæmar, ég var að segja við nærstadda að þetta væri sko ekki komið í gang almennilega, gætu alveg verið róleg þó ég myndi skreppa að pissa en ég fékk það ekki nema með tvo fyldarmenn já eða Konur, önnur var Birna mágkona og hina bara þekkti ég ekki sennilega verið ljósmóðirin, sagði þeim að þetta væri bara eins og með Ara minn margir tímar frammundan í verkjum og hægri útvíkkun og þær gætu verið rólegar ég ætlaði að fá að pissa í friði... en svo var ég um þann mun að fæða á klósettinu þá gekk þetta svona hratt fyrir sig, eins gott að ég fékk ekki að fara ein að skvetta úr henni!! en þá vaknaði égDevil Já ég hefði viljað klára hríðarnar og fæða barnið sem var í maganum á mér í nótt, mér hefði liðið betur þegar ég vaknaði í morgun er ég viss um.

Og já nei ég er ekki ólétt!!!! bara svo það sé á hreinu og í dag hef ég látið hugan reika til baka þegar ég barðist við að koma kraftaverka stráknum mínum í heiminn fyrir rúmum tveimur árum.. úfffff ég fyllist kvíða og skrítnum tilfinningum af tilhuxuninni einni samanWoundering já þetta var erfið lífsreynsla en jafnframt sú alfrábærasta í mínu lífi og get ég hreinlega ekki lýst því með orðum hvað ég elska þennan yndislega strák endalaust mikið og meira og meira með hverjum deginum sem líður. Elska líka hvað hann er skemmtilega mikið líkur pabba sínum oftast og sumir taktar ohhh bara dásamlegtInLove elska þessa 2 stráka undur heittInLoveInLove

En hvað ætli þessi draumur minn merki svo??  Kannski var ég bara að huxa svona mikið um ófædda kúlubúan hans bróður míns sem ég er farin að hlakka mikið til að hittaWink "lítil frænka" sem styttist heldur betur íWink 

jæja ætla að skella mér í heitt bað og sofa ræs 05:15 í fyrró *geysp*

Helgan ekki í miðjum hríðum lengur hehe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nonni

Manstu eftir þáttunum með Bill Cospy á stöð 1 fyrir ca 13 árum eða meira þegar honum dreymdi að hann væri að eignast 3 metra langt brauð og svo kom djús á eftir þannig að hann eignaðist tvíbura bara fyndið.

Nonni, 25.9.2008 kl. 19:05

2 Smámynd: Ingunn Magnúsdóttir

Kannast við svona drauma hehe dreymdi tildæmis í nótt að ég væri komin með meðgöngueitrun og það þurfti að setja mig af stað og ég var búin að vera með hríðir í einhvern tíma og svo var ég að fara byrja að rembast þá sá ég að Ari var bara steinsofandi og ég var bara djö  Ari ætlaru að missa af þessu ég er hérna þvílíkt að reyna á mig til að koma barninu okkar í heimin og þú bara sefur, og hann bara æji Ingunn þú ert alltaf að tuða eitthvað í mér.... svo vaknaði ég hehe .. hefði einmitt viljað klára drauminn

Ingunn Magnúsdóttir, 26.9.2008 kl. 15:34

3 Smámynd: Margrét Elísa;)

Hehehe;) Þið eruð svo fyndnar! ;) ;*** en já, ótrúlegt hvað maður á það til að dreyma knús

Margrét Elísa;), 28.9.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband