Færsluflokkur: Bloggar
29.9.2008 | 18:17
Ég er hákarl:)
Sporðdreki: Þú syndir meðal hákarlanna núna, og þar áttu reyndar heima - enda ertu einn af þeim. Þú ert jafn gráðugur í velgengni og hinir í kringum þig.
Svona hljómar stjörnuspá dagsins í dag fyrir Helguna. Mikið til í þessu get ég sagt ykkur. Gráðug í velgengni það er ég sko, eru það ekki flestir?
Mig langar að gera svo margt, oft að spá í nám og væri ég alveg til í að fara út fyrir landssteinana í nám. Margt sem heillar mig þá aðalega iðngreinar, sem sagt ekki bóklegt nám það er ekki ég. Ef það væri á Videóspólum gæti ég lært það hehe það sögðu vinir mínir allavega í grunnskóla hehe þegar ég kunni allt Heilsubælið utanað og fleira en átti erfitt með að lesa skólabækurnar og ná innihaldinu í þeim. Held það sé lesblindan sem spilar þar inní.
Þannig maður þarf að finna sér eitthvað við hæfi, alltaf langað í Hárgreiðslu, langar líka í snyrtifræði, nudd og einkó svo eitthvað sé nefnt. Ég get orðið góð í þessu ef ég einu sinni vill og trúi á sjálfa mig.. Það er nú eitt sem ég hef unnið mikið í er að læra að trúa og treysta á sjálfa mig, því mig hefur skort trú á sjálfa mig í mörg ár. Hef öðlast aukið sjálfstraust og hefur maðurinn minn hjálpað mér mikið, leggur fyrir mig allskonar áskorannir sem mér finnst áskorun en er það kannski ekki í flestum tilfellum, hann kvetur mig svo áfram til að gera ýmislegt. Sem ég geri og hef mjög gott af að takast á við, lítil sem smá verkefni sem auka sjálfstraustið. Ég væri til dæmis sennilega ekki búin með stúdentinn ef ekki væri fyrir hann Ég ákvað til dæmis að taka þátt í fegurðarsamkeppni þó ég sé enginn fegurðardrottning... en það var áskorun og stóðst ég hana bara ágætlega, var reyndar að pissa á mig úr stressi svo að kinnarnar skulfu þegar ég reyndi að brosa en mikið var þetta gaman og hafði ég mjög gott af þessu Næsta áskorun er önnur keppni sem ég ætla að taka þátt í
Mér finnst alltaf jafn gaman og fyndið að heyra frá fólki sem ekki þekkir mig og svo kynnist mér, að áður en það kynntist mér hafi það haldið að ég væri allt öðruvísi eða mjög ánægð með mig hahaha finnst frábært að heyra það ætli það sé ekki bara gríman sem fær fólk til að halda það sem sannar það að maður á ekki að dæma fólk af útlitinu einu saman þó maður geri það jú stundum sjálfur alveg án þess að svitna
Jæja þarf að skúra
lEitEr
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.9.2008 | 22:25
ég vaknaði
í Miðjum hríðum í morgun!!! hressandi var alveg kasólétt í draumnum og í miðjum hríðum en þær voru ekkert svo slæmar, ég var að segja við nærstadda að þetta væri sko ekki komið í gang almennilega, gætu alveg verið róleg þó ég myndi skreppa að pissa en ég fékk það ekki nema með tvo fyldarmenn já eða Konur, önnur var Birna mágkona og hina bara þekkti ég ekki sennilega verið ljósmóðirin, sagði þeim að þetta væri bara eins og með Ara minn margir tímar frammundan í verkjum og hægri útvíkkun og þær gætu verið rólegar ég ætlaði að fá að pissa í friði... en svo var ég um þann mun að fæða á klósettinu þá gekk þetta svona hratt fyrir sig, eins gott að ég fékk ekki að fara ein að skvetta úr henni!! en þá vaknaði ég Já ég hefði viljað klára hríðarnar og fæða barnið sem var í maganum á mér í nótt, mér hefði liðið betur þegar ég vaknaði í morgun er ég viss um.
Og já nei ég er ekki ólétt!!!! bara svo það sé á hreinu og í dag hef ég látið hugan reika til baka þegar ég barðist við að koma kraftaverka stráknum mínum í heiminn fyrir rúmum tveimur árum.. úfffff ég fyllist kvíða og skrítnum tilfinningum af tilhuxuninni einni saman já þetta var erfið lífsreynsla en jafnframt sú alfrábærasta í mínu lífi og get ég hreinlega ekki lýst því með orðum hvað ég elska þennan yndislega strák endalaust mikið og meira og meira með hverjum deginum sem líður. Elska líka hvað hann er skemmtilega mikið líkur pabba sínum oftast og sumir taktar ohhh bara dásamlegt elska þessa 2 stráka undur heitt
En hvað ætli þessi draumur minn merki svo?? Kannski var ég bara að huxa svona mikið um ófædda kúlubúan hans bróður míns sem ég er farin að hlakka mikið til að hitta "lítil frænka" sem styttist heldur betur í
jæja ætla að skella mér í heitt bað og sofa ræs 05:15 í fyrró *geysp*
Helgan ekki í miðjum hríðum lengur hehe
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.9.2008 | 11:18
undir teppi veður
óbjóðs veður.. Og á maður svo sannarlega að vera bara undir teppi núna ég er það sko. Ekki búin að klæða mig og alveg meigluð fyrir allt hverfið. Langar agalega í eitthvað bjútí trítment en ætli ég hafi mig ekki í að laga vinstrihandar neglurnar, lita glæru augabrúninrar mínar og brúnka kroppinn í dag Reyndar spreyjar kallinn mig oftast og er orðin ansi sjóaður í því en ef ég er ein heima þá verður maður að bjarga sér spurnign um að hann leysi mig af, ef það er brjálað að gera og spreyja kellurnar múhahahahaha Síðan þarf ég í lagningu líka!! ljótan alveg að fara með mig þessa dagana varla að maður sé útúrhúsum hæfur.....
Er reyndar einstaklega tussuleg núna því gærdagurinn var aðeins of strembin og langur.... byrjaði á að vakna klukkan 05:20 í vinnu í Toppsport korter í 6 til rúmlega 8. Þá var haldið heim og klárað að græja prinsinn í leikskólann og henda í eina vél. Þegar gullmolinn var kominn á leikskólann fór kella í Nova og gekk frá einni sölu í snatri, þaðan heim og tók úr vélinni og á snúruna með fötin. Fór svo aftur að vinna í Toppsport klukkan 10 til rúmlega eitt, þá brunaði kella uppá Toyota og skúraði þar. Eftir skúrið náði ég í prinsinn og við drifum okkur bara heim í smá rólegheit og hefði ég vel getað sofnað þá svo drifum við mæðginin okkum korter í 5 á leikskólann til að skúra þar það hafðist fyrir klukkan 6 að klára það með hlaupum og svita, því klukkan 6 fór ég enn og aftur í vinnuna í Toppsport og Ari minn með mér. Bjarminn minn kom svo að sækja hann rúmlega 6. Var búin þar klukkan korter yfir 9, þá var brunað heim og skellt nöglum á eina og klukkan að ganga 12 var orkan orðin ansi lítil í Helgunni, eigilega bara tómur tankur... vippaði mér samt í sturtu og skolaði af mér daginn og svo í draumalandið og svaf í heila 8 tíma hefði getað sofið í cirkabát 17 tíma hehe en þvagblaðran vakti mig og prinsinn á svipuðum tíma.
Í dag ætla ég að gera eitthvað minna, samt nóg, skúra gangin uppi á Toyota og leikskólan náttúrulega svo eru tvær í brúnku í kveld. Frí í leikskólanum á morgun og ég ætla bara að njóta dagsins með Ara mínum og mínum heittelskaða þegar hann kemur úr vinnu og gera helst ekki neitt annað!!!
Nú er ég búin að slaka á í næstum heila 2 tíma usss usss usss best að fara að gera eitthvað!!! þó það væri ekki nema klæða sig og hressa sig aðeins við.
vá vitiði hvað það er stutt í jólin?????
ég er sko löngu farin að pæla í jólagjöfnum elska jólin!! svo mikið jólabarn leiðist samt að fá vísað í jan/feb múhahahaha en það er allt í lagi milljónirnar eru að koma til mín
leiter
mEiglan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2008 | 07:34
eitt stk klukk
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Gjaldkeri,
Klefavörður
umsjónarkona í PleiZinu
Bifreiðaskoðun
Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
Set it off (þarf að eignast hana)
Dalalíf,
Stella í Orlofi,
Sódóma
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Gilhagi
Hólatjörn 4, Self
Háengi 8, self
Reynihólar 12, Dallaz
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Grey´s,
Prison Break,
Oprah,
Næturvaktin bíð spennt eftir dagvaktinni
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium
Frí hvað er nú það? hef alls farið 4 sinnum til útlanda um helgi...
Barcelona með Shell 1999
London 2005 útskriftargjöf
Tallin 2006 páskaferð með Sparisjóðnum (tæp vika...)
Danmörk 2007 með Toyota
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
LAMBALÆRI,
Kjúlli,
Hamborgarahryggur,
Bragðarefur er það ekki matur? tihí
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Barnabækur eru held ég einu bækurnar sem ég hef oftar en einu sinni lesið.
Fjórir bloggara sem ég klukka:
www.meg.blog.is Magga syss
www.brynjalu.blog.is Brynja Lú
www.nonnihall.blog.is Nonni monný
www.annakr.bloggar.is Anna Kristín
Blogg dagsins klárt. Eigið yndislegan dag
knús og kram
Helgan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.9.2008 | 22:28
09.09.1988
Þann dag kom yndislega systir mín í þennan heim og það er leitin að öðru eins krúttbarni og henni. Hún var með eindæmum sætt barn hún setti t.d. alltaf upp krúttlegasta svona er ég sæt svip (fyrir utan Ara Hrannars svona er ég sætur svipinn hans, ekkert sem toppar hann) þarf að skanna inn mynd af því við tækifæri megameiriháttarkrúttbomba nú er þetta krúttbarn orðið 20 ára teik jú verí næs og 20 sinnum fallegri líka ef það er hægt
Í tilefni dagsins fórum við systur systraferð í borg óttans bara gaman hjá okkur og mikið hlegið svo mikið að laga þurfti maskara hahaha. Ég veit að ég get verið mjög hreinskilin og Magga átti í mesta basli með mig í dag hehehehe. Æj þetta voru samt svona had to be there móment talaði við eitthverja skrítna konu og um leið og ég snéri mér við hvíslaði ég að Möggu "vá þessi var skrítin" Magga sussaði á mig heheh Helga!!! Svo vorum í einni búð og erum eitthvað að skoða svo labbar einhver framhjá og ég þefa og segji svona ummm... Magga: hvað? ég æj bara góð lykt!! þarna láum við í goflinu og Magga var mjög fegin að ég sagði ekki vond lykt því konan var ekki langt frá sem sennilega átti ilmvatnslyktina góðu múhahaha Magga spurði svo: Helga huxaru aldrei áður en þú talar!! hehehehe
það voru svo nokkrir fleiri gullmolar sem duttu í dag en man ekki í augnablikinu, en þetta var bara gaman og vert að endurtaka hið fyrsta og ég þarf þá helst líka að eiga gjafabréf í kringluna hehe mikið langaði Helguna í margt í dag og ekki minnkar listinn langi langi eftir þessa ferð, en hann verður tekin með trompi þegar ég fæ Lottóið Milljónirnar mínar....
læt eina fylgja með af okkur stöllum í dag
*fröken 20 ára krúttbarn og Helgan í EDEN eftir systraferðina góðu*
Til hamingju með daginn krúttbarnið mitt
Love you
knús
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2008 | 12:17
Helgan með nýtt look;)
*kellan*
Alltaf svo gaman að breyta til ég er alveg að fíla mig með þennan lit eins og sjá má Ekki amalegt að eiga góða systur sem sér um hárið á mannipassar uppá að maður verði ekki með ljótuna lengi í senn. Kellan fékk meira að segja að heyra það um helgina að ég væri með Perfect hár ekki leiðinlegt að heyra það bæði fyrir mig og mín söster
Annars er kellan bara í stuði, komin á fullt í elræktos vantar bara einhvern frábæran ræktarfélaga Íbba mín!!! kannski ég fái að æfa bara með Gillz og félögum múhahahaha hef sko húmor fyrir kauða get alveg misst þvag þegar ég les bloggið hans ég er náttúrulega að drepast úr strengjum eftir ræktarferðir undanfarið, maður tekur þessu ekkert rólega sko bara harkan sex á þessum bæ!! Ótrúlegt hvað árangurinn er fljótur að koma og það er náttúrulega bara kvetjandi.
Það er svo gott og gaman að gefa hrós og fá hrós því hef ég ákveðið að gefa hrós dagsins og það fær: Maðurinn minn einfaldlega fyrir hvað hann er meiriháttar frábær hann er svo yndislegur maður og ég er svo heppin að hann valdi mig ég er líka doldið mikið skotin í honum hætt að vera væmin núna hehe
Helgan í massastuði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.9.2008 | 22:12
hressandi
Hann hefur örugglega verið með náladofa þegar hann komst úr sínu eigin skotti líklega ansi svangur líka greyið kallinn.
Lokaður í skottinu á bíl sínum í þrjá sólarhringa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2008 | 14:26
hvar hafiði séð þetta?
Finnst þetta nú skuggalega líkt annarri auglýsingu en ykkur? hahahahaha
Helgan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.9.2008 | 07:36
jebb jebb
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.8.2008 | 07:50
nýr sími
Ég fékk nýjan síma á föstudaginn fríkeypis, af því ég er búin að fá slatta af fólki til Nova Dúgleg en á eftir að fá miklu fleiri samt bara rétt að byrja nýja græjan er voða flott og svo mikið bling bling að það er hægt að spegla sig í honum ekki verra fyrir okkur konurna verst að hann var ekki til bleikur!!!
Skellti mér í Reykjavíkur city á laugardaginn og tók þátt í latabæjarhlaupinu með einkasyninum í alveg hreint rjómablíðu hummm það svona mígringdi og rokið lét sig ekki vanta heldur en gaman var þetta þrátt fyrir fílu í veðrinu. Ég hefði sennilega ekki farið út í þetta veður nema bara fyrir gullið mitt Þoli ekki rigningu og er frekar mikill innipúki svo þetta var nú afrek útaf fyrir sig hehe.
Verst að ná ekki að hitta á íþróttaálfinn í eiginpersónu, hefði svo viljað leifa Ara mínum að hitta hann og helst ná því á mynd og svona en það bíður betri tíma.
Það er komið flíspeysu veður hér á Selló þvílíkt búið að rigna og orðið ansi haustlegt úti, myrkur á kvöldin og kertatíminn alveg skollinn á. Kósí!! elska kertaljós og rómantík
Er hérna í Toppsport með hitablásara á fullu því mér er kalt en fólkinu hér inni heitt hehe enda ég eina sem er ekki að hreyfa mig í augnablikinu...
Ég er svo farin að brúnka og gera neglur í Toppsport meðan gullmolinn er á leikskólanum bara gaman
nú er komin löngun í Helguna langar í eitt og annað eigilega ansi margt, bæði uppsafnað og nýtt á lista.
ætla að pússa svetan af speglunum hérna áður en ég fer heim til stákanna minna
Helgan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)