bandið, afmæli, hattar, Jónsi og stuð:)

GrinMögnuð helgi að baki. Langt síðan ég hef haft mig í að blogga fæ oft frábærar hugmyndir að bloggi en kemst ekki til að blogga og svo ætla ég að nota hugmyndina þá var hún ekkert svo frábær æj veit ekki hvað ég er að reyna að segja heheGrin

Ég og minn heittelskaði skelltum okkur á bandið hans Bubba á föstudagskvöldið. Geggjað að vera í salnum , Björn Jörundur og Villi Nagli eru svo fyndnir og margir brandarar sem ekki heyrast í sjónvarpinu. Klæðaburðurinn á Villa er bara fyndinn engum líkur með buxur upp á bringubein og bara að horfa á hann labba inn í salinn fær mig til að hlæjaLoLLoL Eyþór var notla bara flottur þvílíkir hæfileikarSmile og Palli var snilld líka. Björn Jörundur geggjaður, verið mikið í uppáhaldi hjá kellu og á tímabili hlustaði ég endalaust á nýdönsk bara góðirLoL "hei þú viltu segja hvað þú heitir?"

Vá hvað Bubbi var leininlegur hefði skutlaði í hann einum tómat hefði ég haft svoleiðis meðferðis. En mér finnst tómatur ekki vera matur þrátt fyrir að heita tóMATUR, tó þýðir kannski það sama og ey=ekki, eða hvað??? ætti kannski að heita eymatur hehe PælingGrin

Laugardagskvöldið fór ég í afmæli hjá Millý frænku hún var tvítug + 10 hehe. Geggjað gaman. Hattaþema og kella klikkaði ekki á því mætti með sixpensara frá kallinumPolice Var samt alveg í sófafílingnum þegar ég fór og datt svo bara í geggjaðstuð um leið og ég datt inn þröskuldinnGrin gítarstemmari og syngja með fýlingurinn. Þrátt fyrir að ég sé alveg tónlaus bæði laglaus og enga hæfileika á hljóðfæri þá syng ég alltaf með!!!(ungmennafélagsandinn) greyjið þeir sem eru að hlustaGrin Afmælisbarnið tók nú aðeins í gítarinn og það var fyrsta skemmtiatriði kvöldsins, tók afmælissöngin til sín og svona hehe svo kunni hún ekki öll gripin bara algjört bíó heheheheGrinGrin

100_4742

*ég á afmæli í dag ég á afmæli í dagTounge*

Svo var kominn skátafílingur í bræður hans Krisjáns sem spiluðu báðir á gítar og svaka stuð. Svo eru þeir að spila "Hjálpaðu mér upp" með NýdönskSmile kemur ekki Jónsi labbandi upp stigan með gítar og byrjar að syngja og spila með er ekki frá því að nokkrar kellur hafi runnið til í stólnum sínum múhahaha frekar gamanGrin hann var svo og skemmti í klukkutíma, söng og var með uppistand og vá hvað ég hló mikiðSmile

100_4754

*Jónsi að taka Geir ólafs og Ragga bjarna til skiptis* og Gressi bró í fan sæti nr:1 hehe

100_4760

*leynigesturinn með afmælispæjunni sem sveif um allt á skær bleiku skýjiGrin*

100_4762

*benda á klukkuna og nota bicepin heheheheheLoL*

Já það var sko mikið hlegið og mikið gamanSmile kella edrú að vanda og ég get sko alveg skemmt mér án áfengis, bara gaman og engin þynka og ekkert ruglLoL 

helgaogjonsi3

*Kellan og JónsiHappy*

ÉG var eins og kakóbolli við hliðina á honum svo ég gerði myndina brúna heheGrin ótrúlega gaman í afmælinu og hann Jónsi er þvílíkt góður skemmtikraftur alveg mígandi ofvirkur með nokkrar ígræddar hálsæðar hehe og ég fíla hannSmile 

LeitER

Helgan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Josiha

Greinilega mikið stuð í þessu afmæli, hehe...

En mikið er ég sammála þér með Bubba! Hundleiðinlegur alveg og er tæplega talandi!

Josiha, 31.3.2008 kl. 14:27

2 Smámynd: Aðalheiður M Steindórsdóttir

Oh þetta var bara gaman sko! Ég er ennþá kjaftstopp yfir aðal skemmtiatriðinu og er ennþá svífandi á skærbleiku skýji, kanski ég komi niður á jörðina þegar ég er búin að átta mig á hvað ég er orðin gömul, ég allavegana hrökk við þegar hann fór að minnast á elliheimilið hahaha.
Takk aftur fyirir mig Helga mín *knús*
Verð svo að fá að sjá fleiri myndir hjá þér

Aðalheiður M Steindórsdóttir, 31.3.2008 kl. 14:42

3 identicon

Bubbi ??????  Var komin með rosa skýringu á þessu en hún hvarf jafn flótt og hún kom. he he

Kristín (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 17:23

4 Smámynd: Margrét Elísa;)

Hehe stuðið á ykkur! ;)

Margrét Elísa;), 31.3.2008 kl. 17:46

5 identicon

Eða eins og Gauja frænka segir alltaf,TÚMATUR hehehehe:)En tómatur er það víst:)

Brynja (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband