Minning um einstaklega góðann mann lifir

Já elsku afi minn var að kveðja þennan heim. Hann var að verða 91.árs. Var búin að vera veikur í nokkra mánuði en fram að því var hann ótrúlega hress. Undir það seinasta þekkti hann ekki fólkið sitt og var orðinn mikið lasinn, var það því léttir að hann fékk hvíldina. Afi sagði mér alltaf að hann ætlaði að verða 97 ára. Ég var alltaf að vona að hann myndi ná því og trúði að hann myndi lifa svo lengi en svona er lífið víst. Seinast þegar ég heimsótti hann sagði ég við hann þegar ég kvaddi hann "bless afi minn og hafðu það gott" hann varð skrítin á svip og sagði "þú átt nú eftir að hitta mig aftur þú mannst að ég ætla að verða 97 ára gamall"

Sumarfríið var því ekki eins og við vonuðumst til en ég var samt búin að búast við að fá þessar fréttir hvenær sem er. 

Sem krakki var ég mikið hjá afa og ömmu, Hann sagði mér sögur úr æsku sinni og ferðasögur af ferðum sem amma og afi fóru í, ég hjálpaði afa að gróðursetja, vökva og merkja hvaða plöntur væru í hvaða bökkum, hjálpaði honum að taka upp kartöflur, reita arfa og fleira og fleira alltaf nóg að gera. ótrúlega gamanSmile Hann sagði alltaf að ég væri svo lík ömmu svo dugleg og hjálpsöm enda nafna hennarSmile Afi kenndi mér öll þau spil sem ég kann á venjuleg spil (52) eins og: kana, manna, tíu, marías, ólsen ólsen, spaða og fleiri svo spilaði hann endalaust við okkur krakkana. Afi vildi kenna mér bridge því honum fannst ég svo góð í hugareikningiSmile verð því miður að læra það hjá einhverjum öðrumFrown

Afi átti sko stóran og hlýjan faðm og tók alltaf á móti manni opnum örmum. Hann átti sko nóg af ást og hlýju handa öllum sínum afkomendum og þeir eru sko ansi margirSmile

+Hvíldu í friði elsku afi minn +

Helgan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður M Steindórsdóttir

Elsku Helga mín, innilegar samúðarkveðjur vegna afa þíns, var að fá fréttirnar í dag og langar að senda ykkur stórt knús norður yfir heiðar.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Ella ætlar að knúsa þig súperknús frá mér þegar hún hittir þig á morgun í Dalvíkinni.

Kv. Millý

Aðalheiður M Steindórsdóttir, 22.7.2007 kl. 01:26

2 identicon

þetta sem þú skrifar um hann Afa þinn Helga mín er mjög hlýlegt,enda átti hann nóg af hlýu sendi ykkur aftur innilegar samúðarkveðjur.      kveðja til ykkar Gréta.

greta (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 12:04

3 Smámynd: Sólrún

Ég sendi þér elsku Helgan mín og fjölskyldu þinni mínar dýpstu samúðarkveðjur. Alltaf svo erfitt að missa gott og fallegt fólk. Knús til ykkar allra.

Munu englarnir vaka yfir ykkur

Ætla að fara að skoða myndir af litla englabossanum þínum á barnalandi, fær mig alltaf til að brosa fallegi drengurinn ykkar 

Sólrún, 22.7.2007 kl. 18:37

4 identicon

Vildi bara senda þér og þínum mínar dýpstu samúðarkveðjur, megi guð og allir hans englar vaka yfir ykkur og venda.

Halldóra og fjölskylda (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 23:32

5 Smámynd: Josiha

Æj elsku Helga mín - RISAKNÚS á þig! Mínar dýpstu samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar

Josiha, 23.7.2007 kl. 01:56

6 identicon

Elsku Helga og fjölskylda. Ég votta ykkur innilegar samúðarkveðjur.

Bloggið þitt er mjög innilegt og fallegt.

kv. frá DK 

Árún (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 07:56

7 identicon

Ég samhryggist þér og fjölskyldunni þinni innilega Helga. Mjög fallegt blogg.

Þorgerður (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 10:11

8 identicon

Ég samhryggist þér Helga mín og öllum þínum!

Kata (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 10:43

9 identicon

Samhryggist þér innilega Helga mín.

Man eftir því að ég fór stundum með þér að leika heima hjá ömmu þinni og afa. Sérlega skemmtilegt herbergið sem var þarna undir súðinni og það var rúm inni í skotinu.

Ragnhildur (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 18:37

10 Smámynd: Helgan

Þakka allar góðu kveðjurnar góða fólk, mér þykir vænt um þetta

Helgan, 25.7.2007 kl. 10:21

11 identicon

Enn hvað þetta er fallegt sem þú skrifar um afa þinn. Samúðarkveðjur til ykkar.

Nína (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 17:51

12 identicon

Innilegustu samúðarkveðjur til þín Helga mín og ykkar allra.

Maja (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband