sviti og næstum því tár;)

Já hvað haldið að kellan hafi ekki bara skellt sér í ræktina á sunnudaginn, fór svo í fjallgöngu í fyrragær djöfulsins harka ha Wink(gerði ekkert í gær samt skamm skamm!!!!) .. en það var sko kominn tími til, meira djöfulsins hreyfingarleysið alltaf á sumrin hjá kellunniCrying..... ég get svarið það að hormónin mín eru eitthvað kreísí því ég svitnaði bara eins og togarasjómaður og lyktaði eins og skataAngry!!!!!! Heppin þið að vera ekki um leið og ég í ræktinni....Jammí fór á skíðavélina góðu og ætlði að vera hálftíma, eftir 3 mín var ég alveg búin á því og langði bara að fara að grenja get svo svarið það!!!! Ég móaðist við og náði að vera 25 mín... já ekki vön því að svitna við svona lagað, kannski vegna þess að þetta er í fyrsta skipti ever sem ég er ekki í formi!!!!!!!! En það stendur til bóta ekkert vælCrying......  **en ekki dugir að skæla Sigríður mín** (hvaðan er þessi?) Gáta handa ykkur:)

Mig vantar svo margt ég á ekki einu sinni bikini sem passa á mig en það stendur vonandi líka til bóta innan tíðar.....

Þá er þokan loksins búin að yfirgefa Dalvíkina en hún hefur legið hér yfir eins og teppi í örugglega 10 daga!!!! (kannski smá ýkt)  Og jaðrar við að maður sé orðin þunglyndur í kjölfariðSick!!! Nei segji svona en ég vil samt fá sólina tanke you very nice:)

 Einum of lítið að gera í sparó þessa dagana og í dag bjó ég til verkefnamöppu með Leu handa okkur staffinu hehe þessi mappa innihélt ýmsar þrautir eins og finna 10 villur, tenjga milli talna og finndu réttu leiðina að sandkassanum;) og svo má lita myndirnar bara gaman sko hehe (fyrir 5-9 ára ca hehe) þær voru bara nokkuð ánægðar með þetta framtak kellunnar. Er svo að huxa um að kaupa krossgátu blað og gera nýja verkefnamöppu við tækifæri:) maður deyr sko ekki ráðalausGrin...

LeiterHelgan í slæmu formiDevil .....  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ohhh... kannast við þetta með svitann... ég hef nú reyndar aldrei verið í einhverju rosa formi en VÁÁÁÁÁ!!! Fyrr má nú vera óformið... hef aldrei áður svitnað útaf engu og það með sætri lykt... liggur við að ég þurfi í sturtu strax eftir sturtu því ég svitna svo við að þurrka mér og svona

Vonandi er sólin komin til að vera á Norðurlandi... komum að sunnan í gær og vonandi hefur okkur tekist að taka hana með... geggjað veður í borginni allan tímann sem við vorum (frá lau - mið)

Sjáumst Helga mín og bestu kveðjur til stubba þíns frá stubba mínum

Maja (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 08:16

2 identicon

Haha.. mappan .. þvílík snilld.. maður fær þá allavega eitthvað að gera :) Njóttu bleika hanans ;)

Þorgerður (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 13:02

3 identicon

Þetta kemur allt með formið Helga... bara fara rólega í þetta =)

Takk fyrir góð ráð =).... og fyrir þessa frábæru möppu líka. Sparisjóðurinn væri ekki eins án þín!

Lea (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 13:05

4 identicon

Stella í orlofi baby !!! 

þetta með formið hlítur að koma með kalda vatninu þú ert svo asskoti dugleg :)

annað en ég sem geri ekki annað en að falla í mínu eigin nammibindindi!! 

Árún (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 08:00

5 identicon

hey...... ef þú varðst sveitt eftir 3 mín þá verð ég uppgefin að horfa á fjandans vélina pottþétt..... sumir eru hreinlega fæddir til að vera feitir!!!!!!! (ég)

Kata (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 13:06

6 Smámynd: Josiha

Velkomin í sumarfrí!

Josiha, 13.7.2007 kl. 18:48

7 Smámynd: Sólrún

Eigðu yndislegt sumafrí hot mama mín og knúsaðu gullið frá mér

Sólrún, 16.7.2007 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband