14.6.2007 | 23:08
Thanke you og sömuleiðis..........
ég er svo sleip í enskunni að það hálfa væri stundum hellingur!!! ég var að afgreiða útlending fyrir nokkrum dögum sem kveður mig svo og óskar mér góðs sumars og ég svara um hæl thanke you og sömuleiðis!!!! múhahahaha algjör sauðhaus ég er ekki hiss að hún hafi ekki skilið mig tihí.. ég er alveg riðguð í enskunni enda ekki eins og maður sé að halda þessu við, þó skil ég mun meira en ég get svo komið frá mér. Svo er nú bara Dallaz að fyllast af útlendingum sem kemur hingað til að vinna og borða núðlur
já duglegt fólk upp til hópa og sumir kunna bara ekki stakt orð í ensku og tala við mann á fingramáli eða benda hingað og þangað og svo á maður bara að geta í eyðurnar
mér finnst alveg í lagi að þetta fólk geti allavega bjargað sér á ensku þó það væri ekki meira. Ég er ekki viss um að maður fengi góðar móttökur í banka í kína eða póllandi með því að tala fingramál eða íslensku og ætlast til þess að viðkomandi starfsmaður skildi það sem maður væri að reyna að benda á hehe
já það er margt misjafnt fólk í kýrhausnum eða hvernig sem þessi staka hljóðar!!!
fullbókuð helgi framundan, brúðkaup og útskriftarveisla gaman gaman og ætli það verði ekki éti eitthvað sem minnir mig á það að ég þarf að hunskast af stað í gymið aftur búin að vera alltof löt... fer að hlaupa í spek!!!
vikan bókstaflega búin að fljúga áfram og föstudagur á morgunn sem er bara gott tíminn líður svo hratt þegar maður er hamingjusamur og líður vel er enþá að venjast því að vera farin að vinna langar bara að vera með strákunum mínum... samt eru dagarnir rosa fljótir að líða og ég fer alltaf heim í hádeginu (mjaltatíminn) þannig fjarveran er ekki eins erftið. Bjarmi ljómar alveg með að vera heima með gullinu okkar og er Ari Hrannar alltaf að verða meiri og meiri pabba strákur, enda dúlla þeir sér þvílík saman alltaf úti að labba og svona. Hann er notla doldið mikið mömmusjúkur og fór hann að gráta þegar ég var að fara í vinnu aftur í hádeginu í dag og rétti út hendurnar og vildi koma til mömmu sinnar þvílík dúlla.. Hann hefur ekki látið svona áður en er greinilega að átta sig að ég er ekki að skjótast í ræktina eða búðina heldur er ég doldið lengur í burtu... ekki vanur að vera lengi frá mömmu sinni þessi elska og móðirin ekki vön að vera lengi frá gullinu sínu
það er ekkert eins dásamlegt og að vera mamma og fá að upplifa þetta allt dásamleg tilfinning
love it
LeitER
Helgan
Athugasemdir
Hahaha þú ert snillingur Helga mín!
Ég vona að allir verði svo gæfusamir að verða einhvern tíman foreldrar.
Og alveg sammála þér. Það er sko BEST Í HEIMI að vera mamma. Engin orð geta lýst þessari móðurtilfinngu nógu vel
*knús*
Josiha, 14.6.2007 kl. 23:40
Útledingar pútlendingar, ég er núna útlendingur í DK og ef ég ber ekki fram eh danskt orð rétt þá þykjast þeir ekki skilja mig, svo núna þá tala ég alltaf aðeins hraðar og meira eins og ég sé á 4 glasi, eða drekk 4 whiteglös í morgunmat
..finnst lágmark að þegar maður flytur í nýtt land að maður læri móðurmálið þeirra og taki þátt í menningunni pínu smá
Grey litli Ari Hrannar að þurfa að missa móður sína í vinnuna, finnst ömurlegt hvað mæðraorlofið er stutt og eins og börnin séu bara ready steady til að sjá um sig sjálf á þessum tíma, svonma lítil greyin og vita ekkert hvað er að ske
En þú ekkert smá mikil ofurmamma og pottþétt alveg æðisleg mamma og mig langar líka að fá að upplifa þetta eh daginn..vonum það besta
Sólrún, 15.6.2007 kl. 08:02
Hæhæ
já það er sko best í heimi að vera mamma ekkert betra...... minn er einmitt komin á leikskóla og fílar sig í botn, er reyndar heima með hann núna með lungnabólgu og eyrnabólgu vona að þetta fari að vera gott........
en hver er svona heppin að vera að fara a gifta sig ???
Halldóra (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 18:50
Þessir nýbúar geta sko bara hunskast til að læra málið okkar annars hafa þeir ekkert að gera hér á landi takk fyrir.
Kristín, 16.6.2007 kl. 12:18
Takk kærlega fyrir mig gamla mín og Hr. Bjarmi;) gaman að fá ykkur;) Alltaf jafn gaman að sjá hvað lífið leikur við þig;)
Yngri (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.